152. löggjafarþing — 37. fundur, 10. feb. 2022.
opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Þetta byrjaði allt sem vanvirðing við Alþingi en þetta er komið svo miklu lengra en það. Þetta er orðið svona af því að hæstv. ráðherra er farinn að brjóta lög. Þegar sá hæstv. ráðherra er ráðherra dómsmála er það enn alvarlegra mál. Það er aðeins ein leið út úr þessu og hún er sú að hæstv. ráðherra segi af sér eða verði látinn segja af sér.