152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:53]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Út frá því þeim orðum sem hér hafa fallið finnst mér ástæða til að koma aðeins upp, svo það sé öllum ljóst, líka nýjum þingmönnum og þeim sem ekki eiga sæti í nefndinni, að það er ekki svo að Útlendingastofnun hafi ekki sent umsóknirnar og þær upplýsingar sem eru til staðar. Ágreiningurinn hér snýst um það að Útlendingastofnun þarf að vinna umsagnir um þessar umsóknir, bara svo því sé haldið til haga, og það hafa ekki verið nein vandkvæði við að fá þau gögn og þær upplýsingar sem til eru í stofnuninni.

Hér er komin upp umræða um túlkun 51. gr. og það hefur komið áskorun um að fá lagaskrifstofu þingsins til að gefa okkur einhvers konar greiningu á því. Ég held að það sé vel því að það er þannig að hv. allsherjar- og menntamálanefnd bókaði í desember og vísaði þá í 51. gr. og óskaði eftir því að bæði umsóknir og umsagnir myndu koma fyrir í byrjun febrúarmánaðar. Svo varð því miður ekki en við höfum hér (Forseti hringir.) farið að velta fyrir okkur meginreglunni og því að veita ríkisborgararétt. Það er í rauninni (Forseti hringir.) það verkefni sem ég hefði kosið að við í allsherjar- og menntamálanefnd værum í núna, (Forseti hringir.) þ.e. að velta fyrir okkur framtíðarfyrirkomulaginu. (Forseti hringir.) En það er alveg ljóst að við verðum að leysa þennan hnút og ég vænti þess og vona að við getum mjög fljótlega farið að afgreiða þessar 170 umsóknir.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á að þegar um er að ræða fundarstjórn forseta hefur hver ræðumaður aðeins eina mínútu, ekki eina og hálfa mínútu.)