opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Herra forseti. Ég má til með að bæta því við, í ljósi þess að hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar fer í ekki mjög sterka vörn en samt vörn fyrir Útlendingastofnun í þessu máli, að það sem kemur fram hjá hv. formanni, um að umsagnir umsækjenda um ríkisborgararétt hafi ratað til Alþingis, skiptir bara engu máli vegna þess að það er ekki allt sem Útlendingastofnun á að gera. Útlendingastofnun á að skila til Alþingis umsóknum þessara einstaklinga. Hún á að skila umsögnum um þær umsóknir og hún á að skila umsögnum ríkislögreglustjóra um þær. Þessi þrjú gögn þurfa að liggja fyrir fyrir hverja einustu umsókn en einungis eitt af þessum þremur plöggum hefur skilað sér frá Útlendingastofnun. Við eigum ekkert að hrósa stofnuninni fyrir að gera þriðjung af lögbundinni skyldu sinni. Annaðhvort stenst hún lög eða ekki. (Forseti hringir.) Útlendingastofnun er að brjóta lög í skjóli ráðherra Sjálfstæðisflokksins. (Forseti hringir.) Formaður allsherjar- og menntamálanefndar, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þarf ekki að verja það.