152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:56]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það er gott að setja þetta í samhengi. Gögnin sem talað var um, umsóknirnar sjálfar, eru auðveldi hlutinn í rauninni. Það eru bara eyðublöð sem skilað er inn, pappírar o.s.frv. sem er safnað saman, bara ákveðinn tékklisti. Vinnan sem þarf að fara fram og er rukkað fyrir, 25.000 kr. fyrir hverja umsókn, er einmitt umsögn Útlendingastofnunar um umsóknina og vinnan við að ná þessu frá ríkislögreglustjóra, aðallega umsögninni. Umsóknin sjálf er gagnslaus án umsagnarinnar. Það er ekkert samhengi í því hvernig umsóknin er án hennar. Það er það sem við höfum beðið um allan tímann. Umsóknirnar bárust meira að segja seint. Þær komu þó en það er auðveldi hlutinn. Það er bara pappírsvinnan sem er til þá þegar og umsækjandi hefur lagt inn. En þar að auki eru það (Forseti hringir.) 25.000 kr. sem hver umsækjandi borgar (Forseti hringir.) til Útlendingastofnunar til að sækja rétt sinn (Forseti hringir.) samkvæmt stjórnarskrárlögum Íslands.