opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegur forseti. Það er alveg með ólíkindum að hlusta á hæstv. ráðherra að taka til máls og alltaf er það þannig að allt þingið misskilur. Hann skilur rétt, þingið misskilur. Það er ekki þannig. Við erum að fara fram á að þetta verði gert með sama hætti og hér hefur tíðkast um margra ára bil. Hins vegar heldur hæstv. ráðherra fast í þá skoðun sína að það verklag sem viðhaft hefur verið hér í gegnum tíðina sé allt í einu í dag orðið að einhverju óskaplegu lögbroti. Það er einfaldlega rangt mat hjá hæstv. ráðherra. Og talandi um jafnræði, þeir sem sóttu um að verða ríkisborgarar í gegnum þessa leið til Alþingis mega alveg gera kröfu um að njóta jafnræðis gagnvart þeim sem fóru þá leið í gegnum árin, síðast, þar síðast og þar á undan. Þeir eru búnir að borga fyrir sína umsókn og það er ekkert í lögunum sem segir að þeir eigi að fá öðruvísi afgreiðslu en undanfarin ár.