afléttingar sóttvarnaaðgerða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir þessa fyrirspurn. Það er rétt, við erum hér á viðkvæmum tímapunkti í þessari ómíkron-bylgju og faraldrinum öllum þar sem útbreiðsla smita er mjög mikil. Blessunarlega hefur þeim fækkað sem veikjast illa og þurfa til að mynda á gjörgæslumeðferð að halda. Við höfum verið, á milli þessara afléttingardagsetninga, að létta á, gera afléttingar sem snúa til að mynda að sitjandi viðburðum og sóttkví o.s.frv. Og nú er meginspurningin á þessum viðkvæma tímapunkti hvort við eigum, eins og boðað er í skrefi tvö, að hætta með einangrun og sóttkví í ljósi þessarar miklu útbreiðslu, sem veldur auðvitað vandkvæðum á öllum okkar heilbrigðisstofnunum, ekki síst á Landspítalanum, eins og hv. þingmaður fór yfir.
Við breyttum reglum um einangrun núna á mánudaginn úr sjö í fimm daga. Í samtali mínu við heilbrigðisstofnanir hefur komið fram að það er kannski mikilvægasta verkfærið okkar í dag til að tempra útbreiðsluna. Það er hins vegar orðið snúnara að meta, ef maður lítur á heildarmyndina, hversu mikil áhrif þessar fjöldatakmarkanir og klukkutímar í opnun veitingastaða o.s.frv. hafa, hvaða áhrif það hefur gagnvart því að verja heilbrigðisstofnanirnar. En ég segi það bara hér og nú, af því að við vorum bara að breyta því núna á mánudaginn, að við eigum að halda í einangrunina. Það er mitt mat. Ég get komið nánar inn á aðra hluti síðar, en þetta var svar við meginefni spurningarinnar, tel ég.