biðtími í heilbrigðiskerfinu.
Hæstv. forseti. Endómetríósa, kallað endó í daglegu tali, er sjúkdómur sem talinn er að leggist á eina af hverjum tíu konum. Undanfarið hafa birst viðtöl við konur með endómetríósu og nú síðast í fréttatíma RÚV var viðtal við konu sem greind var með endó þegar hún var 28 ára. Konan hafði frá því að hún var 14 ára verið sárkvalin af verkjum. Þetta er sjúkdómur sem orsakast af því að endómetríósufrumur sem finnast á ýmsum stöðum í líkamanum bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum kvenlíkamans og það getur valdið miklum sársauka. Það getur leitt til þess að konur geta ekki sinnt daglegum störfum og geta jafnvel ekki orðið barnshafandi. Það hefur verið skortur á þjónustu hér á landi við konur með þennan sjúkdóm en Klíníkin hefur nýlega brugðist við þeim skorti og hóf nýverið að bjóða upp á meðferðir vegna endó. Á fimmta tug kvenna eru nú þegar skráðar í aðgerð á næstu mánuðum en þurfa sjálfar að greiða fyrir aðgerðina. Biðtími eftir greiningu og aðgerð á Landspítalanum er gríðarlega langur og þar með óásættanlegur. Það er ljós að Landspítalinn ræður ekki við þetta verkefni. Þess vegna verður að nýta allir bjargir sem bjóðast.
Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Telur ráðherra það ekki fýsilegan kost að bregðast við með tilkomu þjónustunnar hjá Klíníkinni á meðan Landspítalinn getur ekki ráðið við þetta verkefni og fá samning milli Sjúkratrygginga Íslands og Klíníkurinnar þannig að konur geti fengið bót sinna mála?