biðtími í heilbrigðiskerfinu.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir að vekja máls á þessum flókna sársaukafulla sjúkdómi. Hún fór vel yfir hann hér og þá stöðu sem er uppi. Til að bregðast við þeirri spurningu, hvort ráðherra telji kost á að bregðast við stöðunni og horfa til þeirrar sérfræðiþjónustu sem nú er komin á Klíníkina, þar sem er sérfræðingur sem hefur reynslu og þekkingu af slíkum aðgerðum sem eru ein lausn á þessum erfiða sjúkdómi, þá hef ég þegar kallað eftir upplýsingum um stöðuna gagnvart teymi Landspítalans. Árið 2017 var sett af stað þverfaglegt teymi sem sérhæfir sig í þjónustu vegna legslímuflakks. Á hverjum tíma eru um 60–70 sjúklingar í virkri meðferð vegna legslímuflakks á göngudeildum ólíkra meðferðaraðila. Það sem kom mér mest á óvart, þetta eru um 10% kvenna, er hversu fjölbreyttur sjúkdómurinn er og hversu skammt á veg við erum komin með að finna lausnir. Það er því fagnaðarefni að þarna sé komin enn ein lausnin. Við höfum þegar sett þessa vinnu af stað. Ég hef lagt áherslu á að hraða því að koma þessari lausn á í samvinnu við teymi Landspítalans þannig að hægt sé að fara að vinna á þeim biðlistum sem hafa safnast upp en samkvæmt því var heildarfjöldi á biðlista í janúar 49 sjúklingar. Ég vonast til þess að á næstu dögum verði gengið frá því að þessi meðferð verði í boði.