152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

biðtími í heilbrigðiskerfinu.

[11:33]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Það gleður mig mjög mikið að heyra að vinna sé farin af stað, en það þarf að hafa hraðar hendur. Það er ljóst að nú þegar er tilbúinn sérfræðingur hjá Klíníkinni og til að brúa þetta bil væri kannski æskilegt að grípa til þeirra bjargráða sem þar er að finna. Mig langar að benda á í þessu sambandi að konur hafa verið í fullkominni óvissu um langan tíma vegna leghálsskimana, vegna sýnatöku og greiningar sýna sem ferðast nánast um allan heiminn. Það er því nóg komið, vil ég segja, þó að þetta bætist ekki við. Vissulega er gott að Landspítali ætli að fara í að vinna niður biðlista en er ekki nóg komið af því að hlaða á Landspítalann? Þess vegna bendi ég á og ítreka enn og aftur spurningu mína: Er hægt að brúa bilið og festa þá þennan aðgerðalista hjá Klíníkinni með tilkomu samnings?