spurningar til forseta í sambandi við gögn frá Útlendingastofnun.
Virðulegur forseti. Ég kem hingað upp vegna þess að í fundarstjórn forseta áðan bárust forseta nokkrar spurningar sem hann svaraði ekki. Ég vil því bera þær upp aftur í þeirri von að hæstv. forseti svari þeim spurningum sem hv. þingmenn lögðu fyrir hann í fundarstjórninni hér áðan. Hæstv. forseti hefur verið spurður hversu alvarlegum augum hann lítur á það mál að Útlendingastofnun fyrir atbeina dómsmálaráðherra afhendi ekki umbeðin gögn og hann var beðinn um að fá minnisblað frá lagaskrifstofu þingsins um 51. gr. þingskapa og hvernig hún snertir þetta mál. Sömuleiðis hefur hæstv. forseti endurtekið verið beðinn um að beita sér fyrir því að þingið fái þau gögn sem því ber að fá, ekki bara samkvæmt 51. gr. þingskapa heldur samkvæmt skýrri lagaskyldu, samkvæmt 6. gr. laga um ríkisborgararétt. Ég árétta því þá spurningu: Hvað ætlar hæstv. forseti að gera til að tryggja að Útlendingastofnun (Forseti hringir.) og í raun ráðherra fari að lögum (Forseti hringir.) og vilja Alþingis?