raforkumál.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir að efna til þessarar mikilvægu umræðu um orkumál. Ég mun reyna að svara spurningunum í þeirri röð ég fékk þær sendar í þessari stuttu framsögu. Við Íslendingar búum svo vel að eiga miklar auðlindir, m.a. í formi vatnsafls og jarðvarma, sem við höfum nýtt okkur til hagsældar. Í dag eru þær aðstæður uppi að blikur eru á lofti í raforkumálum. Það birtist m.a. í því að vegna slæms vatnsárs geta raforkuframleiðendur ekki afhent þeim aðilum sem keypt hafa skerðanlega orku þá raforku sem þörf er á. Rétt er að taka skýrt fram að um er að ræða raforku sem býðst á þeim kjörum að í lélegum vatnsárum er hún skerðanleg. Í öllum tilvikum er til varaafl í þessum kerfum eða hjá þessum notendum. Því er ekki um eiginlegan orkuskort að ræða heldur færist orkunotkun úr endurnýjanlegri grænni raforku yfir í mengandi olíubrennslu, sem er óheppilegt bæði vegna hærri kostnaðar en ekki síður vegna loftslagsáhrifa.
Orkustofnun hefur áætlað raforkuþörf fjarvarmaveitna á skerðanlegri orku, fyrir febrúar til og með maí 2022, í samráði við fjarvarmaveiturnar. Nemur áætluð raforkuþörf 51 GW, en það svarar til um 5.200 tonna af olíu. Viðbótarlosun á koltvíoxíði á Íslandi mun sökum þess því nema um 15.500 tonnum bara yfir þessa þrjá mánuði, eða um 2% af allri olíulosun bifreiða á Íslandi 2020.
Í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er unnið að mörgum verkefnum sem ætlað er að takast á við áskoranir í orkumálum. Má þar helst nefna að ég hef sett af stað vinnu við grænbók sem er samantekt á stöðu og áskorunum í orkumálum með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum. Starfshópur hefur verið skipaður til að útfæra viðmið í reglugerð um fullnægjandi raforkuöryggi og valdheimildir og úrræði hins opinbera til að tryggja framboð á raforku og yfirsýn á heildsölumarkaði. Tillögur starfshóps um orkuöryggi á heildsölumarkaði liggja fyrir og eru til skoðunar. Í ráðuneyti mínu er jafnframt unnið að frumvörpum sem gert er ráð fyrir að verði lögð fram á yfirstandandi þingi. Um er að ræða frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun vegna tækni við aflaukningu á virkjunum sem eru þegar í rekstri, og frumvarp um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar sem snýst um einföldun á styrkjakerfinu vegna niðurgreiðslna á kaupum á varmadælum. Þá er unnið að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga sem á að samræma og einfalda rekstrarumhverfi smærri virkjunaraðila.
Ýmis önnur atriði mætti nefna: Ríkisstjórnin hefur stóraukið fjármagn til Orkusjóðs og stefnir sjóðurinn á að hafa varmadæluvæðingu eitt af áherslusviðum strax í næstu úthlutun og einnig nýtingu lægra hitastigs sem nýtist sérstaklega kaldari svæðum með fjarvarmaveitum. Orkustofnun beindi í janúar tilmælum til Landsvirkjunar um að mánaðarsölu þeirra inn á heildsölumarkað væri beint til almennings. Jafnframt hefur stofnunin lagt fram tillögur um þróun lagaramma til að halda betur utan um orkuöryggi almennings. Aukið fé hefur verið veitt til gagnamála til að auka gagnsæi málaflokksins, bæta eftirlit og auðvelda ákvarðanatöku til lengri og skemmri tíma. Undirbúningur nýrra virkjunarkosta er tímafrekur, eins og við þekkjum, og hefur ýmislegt hamlað slíkri uppbyggingu undanfarin ár. Það er ódýrara og hagkvæmara og hægt að bregðast hraðar við með því að nýta núverandi virkjanir betur og bæta flutningskerfið. Þess vegna hef ég sett af stað vinnu við gerð frumvarps til að liðka fyrir aflaukningu í virkjunum sem eru nú þegar í rekstri. Þá eru margvíslegar framkvæmdir á framkvæmdaáætlun Landsnets sem geta bætt flutningsgetu milli landsvæða, en þær geta bætt úr ástandinu og jafnað álag þegar misvægi er í framleiðslu vegna staðbundinna veðurfarsáhrifa. Flutningsgeta núverandi byggðalínu er 130 MW eða um 4% af uppsettu afli kerfisins. Landsnet er með áform um að auka þessa getu í 10% með fimm línum sem eru mislangt komnar í ferlinu. Þannig þarf að styrkja flutningskerfi og dreifikerfi svo þau geti tekið við nýjum virkjunarkostum eins og vindorku- og smávirkjunum.
Ýmsir virkjunarkostir eru í nýtingarflokki rammaáætlunar og ég ætla að leyfa mér, vegna þess stutta ræðutíma sem mér er úthlutað hér, að geyma umræðuna um þau mál og hvar tækifærin liggja til raforkuframleiðslu þar til í næsta dagskrárlið.
Eftirspurn eftir grænni orku er gríðarlega mikil og mun bara aukast og því ómögulegt að svara þeirri spurningu með einhverri vissu hvaða tækifæri hafa tapast vegna þess að ekki er meiri orka til ráðstöfunar
Til að svara síðustu spurningu hv. þingmanns, varðandi þróun á heildarorkuþörf landsins, er hægt að líta til raforkuspár Orkustofnunar og þá helst til sviðsmyndarinnar sem kölluð er Græn framtíð. Aðalatriðið er þetta: Ég hef sett af stað umfangsmikla vinnu við að kortleggja stöðu raforkukerfisins og þær áskoranir sem fram undan eru. Ég mun leggja fram frumvörp til að greiða fyrir því að ná betri nýtingu á þær virkjanir sem nú þegar eru til staðar, einfalda styrkjakerfið við kaup á varmadælum og Orkusjóður hefur verið efldur. Ég legg allt kapp á að ná markmiðum okkar í loftslagsmálum. Í þeirri baráttu skipta orkumálin höfuðmáli.