152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

raforkumál.

[11:48]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Það er ekki orkuskortur á Íslandi. Það er hins vegar umframeftirspurn eftir grænni orku og hún á bara eftir að aukast. Endurnýjanleg orka er ein verðmætasta varan á markaði og hún er takmörkuð gæði. Í lokuðu raforkukerfi eins og okkar hefur lélegt vatnsár mjög mikil áhrif á framboðið. Það hefur verið gripið til skerðinga og þær eru, eins og hér hefur fram komið, samkvæmt þeim raforkusamningum sem gerðir hafa verið. Orkan er keypt á lægra verði til þess að hana megi skerða þegar svona stendur á. Það er viðskiptaákvörðun fyrirtækjanna sem slíka samninga gera að taka þessa áhættu á skerðingunum. En það er líka umhugsunarefni og mjög stórt verkefni að verið sé að kaupa skerðanlega orku til þess að hita hús hér á landi. Þar þarf að grípa inn í og þar þurfa stjórnvöld að koma því þannig fyrir að hitaveita sé ekki undir skerðanlegri orku komin.

Ráðherra verður tíðrætt um orkuskiptin. Hafa stjórnvöld kortlagt þessi orkuskipti? Ráðherrann minntist á flutningskerfið. Við vitum að það mun taka alla vega áratug að klára það þannig að byggðalínan fyrir norðan haldi og skili því sem þarf að skila. Á meðan verður flutningstap í kerfinu og alls konar aðrir flöskuhálsar. Innanríkisráðherra hefur reyndar gefið í skyn að hann vilji breyta skipulagsmálum þannig að hægt sé að leggja línur með öðrum hætti en að það þurfi að fara í gegnum skipulagsvald hvers einasta sveitarfélags. Það væri gaman að heyra afstöðu ráðherrans til þess, hæstv. forseti.

Það þarf að forgangsraða orkunni. Það þarf að setja almenning og venjuleg fyrirtæki í forgang. Stóriðjan keppir á markaði. Stóriðjan þarf að greiða það verð sem þarf að greiða fyrir þessa verðmætu vöru og það er í höndum stjórnvalda að tryggja raforkuöryggi almennings hér á landi.