raforkumál.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að hefja hér umræðu um þetta mjög svo þarfa mál. Einnig vil ég þakka ráðherra fyrir mjög greinargóða ræðu áðan. Við skulum horfa til framtíðar og jú, jú, staðan er eins og hún er í dag, við þurfum bara að taka á henni. En framtíðarverkefni okkar sem snýr að raforkumálum og það að fara inn í græna framtíð er feiknarlegt og við eigum eftir að gera mjög mikið til þess. Í mínum huga blasir við að við þurfum að virkja meira, hvort sem það er í jarðvarma, að beisla orkuna í vindinum eða þá að taka nýjar virkjanir inn, smávirkjanir, og jafnvel þurfum við nýta þær virkjanir sem fyrir eru. En það er ekki nóg að virkja, við þurfum líka að koma orkunni til staðar og þar eigum við mjög mikið verk fyrir höndum. Það var áhugaverður fundur sem við áttum í gær, þingflokkur Framsóknarflokksins, með Landsneti varðandi það ferli sem fer í gang þegar þarf að leggja nýja línu. Meðaltalið er svona sirka sjö ár í eðlilegu ferli og þar af er bara framkvæmdatíminn tvö ár. Þannig að það skuli þurfa fimm ár í skipulagsmál, og við þekkjum þá umræðu öll — þar þurfum við líka laga til, myndi ég segja, virðulegur forseti, og taka á þeim málum. Jú, græn framtíð blasir við okkur en til þess að hún verði að veruleika þá þurfum við að taka til í öllu okkar regluverki líka og við þurfum að vera einbeitt í verkefninu.