raforkumál.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að hafa frumkvæði að þessari umræðu. Það er nauðsynlegt markmið á næstu 20 árum að skipta alfarið út jarðefnaeldsneyti í íslenska hagkerfinu. Það er ekkert smáverkefni. Íslendingar notuðu nefnilega milljón tonn af olíu árið 2018 eða sem nemur 14 olíutunnum á hvert mannsbarn í landinu. Það er olía á skip og tæki, bensín á bíla og flugvélar, allt heila klabbið. Ímyndið ykkur bara ef 1. janúar ár hvert kæmi flutningabíll og sturtaði þessu í garðinn hjá ykkur þar sem þið mynduð svo kveikja í sjö og hálfum lítra á hverjum degi allt árið. Þessari orku þurfum við að skipta út frá orku sem ekki rústar umhverfinu og það er ekkert mikilvægara í mínum huga í umhverfismálum. En það er einnig efnahagslega mikilvægt að ráðast í þetta verkefni því að peningana fyrir þennan sjö og hálfa lítra sem við kveiktum í úti í garði leggjum við inn á norska olíusjóðinn. Þess vegna tel ég mikilvægt að við hugsum út í það hvernig uppbygging fyrirtækjanna mun fara fram sem munu skaffa rafeldsneytið á flugvélarnar og skipin. Það á að mínu ekki að fara fram með þeim hætti að kapítalistarnir komi hérna og græji þetta og græði svo á öllu saman. Þessi fyrirtæki þurfa að vera í eigu hins opinbera sem skila arði í ríkissjóð. Sú orka sem þarf til að skipta út olíunni þarf að vera til og þess vegna þarf langtímastefnumörkun. Það má ekki vera búið að ráðstafa öllu saman í eitthvað annað út af einhverri kreddutrú á markaðinn. Hér þarf einfaldlega gamaldags áætlunarbúskap, fimm og tíu ára áætlun. Við þurfum áætlun um það hvernig við ætlum að hætta að kveikja í olíu úti í garði til að viðhalda þeim lífsgæðum sem við viljum hafa.