raforkumál.
Herra forseti. Það eru blikur á lofti í orkumálum, sagði hæstv. ráðherra hér áðan. Hvernig geta verið blikur á lofti í orkumálum þjóðar sem framleiðir meiri orku fyrir hvert mannsbarn en nokkur önnur þjóð í heimi? Það er ekki orkuskortur í landinu heldur skortur á forgangsröðun og framtíðarsýn hjá stjórnvöldum. Því miður er ég hræddur um að sú forgangsröðun og framtíðarsýn muni ekki batna í Kárahnjúkaráðuneytinu, sem ríkisstjórnin bjó til utan um þessi mál með því að steypa saman umhverfi, loftslagi og orku í eitt ráðuneyti sem fer með allar hliðar teningsins og ætlar, eins og sést af öllu sem frá ráðherranum kemur, að nota loftslagsvandann sem afsökun fyrir gömlu, slæmu botnvirkjunarstefnu Kárahnjúkaflokkanna í ríkisstjórn.
Hér var vitnað til þess að forstjóri Landsvirkjunar reiknaði með að það þyrfti að virkja svona 50% ofan á heimsmetið sem við eigum nú þegar í virkjunum. Til þess að fá út þá tölu þarf að halda áfram vexti í stóriðju og það þarf að halda áfram vexti á almennri notkun. Einhvern tíma þurfum við sem samfélag að setjast niður og spyrja: Hvort viljum við? Vegna þess að bæði gengur ekki til framtíðar. Það er ekki bæði hægt að dæla endalaust ódýrri orku í stóriðju en búa við þá ótrúlegu stöðu að almenningur víða um land þurfi að brenna olíu til að fá hita í húsin sín. Sem dæmi um það að orkuna skorti ekki skulum við bara rifja það upp að Norðurál fékk 21 MW aukalega í fyrra, það var nýr samningur gerður við Verne (Forseti hringir.) upp á 20 MW í fyrra og 10–20 MW fóru til AtNorth í fyrra. (Forseti hringir.) Það var ekki orkuskortur hjá fyrirtækjunum þegar þau fengu orku fyrir ári. (Forseti hringir.) Af hverju ætti hann að vera núna (Forseti hringir.) nema vegna þess að þau eru komin með vin í ráðuneytið til að keyra málin áfram?
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á takmarkaðan ræðutíma í sérstakri umræðu. Hver ræðumaður hefur aðeins 2 mínútur.)