raforkumál.
Herra forseti. Ég þakka bæði málshefjanda og ráðherra fyrir að vera í þessari umræðu í dag. Ég verð að segja til að byrja með að hver einasti punktur málshefjanda verðskuldar sérstaka umræðu. Ég trúi því að ég sé ekki eini þingmaðurinn sem hyggst nýta mér vænta umræðu um rammann hér síðar í dag til að fara yfir þá punkta. En mig langar að beina sjónum að núverandi stöðu í ljósi frétta af því að Landsvirkjun hafi þurft að grípa til skerðinga hjá þeim sem hafa keypt orku samkvæmt slíkum samningum. Ég held við séum öll meðvituð um að það eru ekki samningarnir sem slíkir, þessir skerðingarsamningar, sem eru vandamálið. Þetta er eðlileg ráðstöfun, leið til að nýta orkuauðlindina vel, sérstaklega á meðan við erum ekki búin að ná tökum á því hvernig við nýtum vindorkuna til að spila á móti þegar samdráttur er í vatnsbúskapnum. Áskorun stjórnvalda, verkefnið þar, hlýtur fyrst og fremst að vera að tryggja að íbúar sveitarfélaga á svokölluðum köldum svæðum sem treysta á olíu sem varaafl, þ.e. jarðvarmaveiturnar, séu ekki háðir þessum skerðingarsamningum, heldur kaupendur sem geta þá lagað framleiðslu sína að stöðunni þegar vatnsbúskapurinn er slakur og eftirspurn er í hæstu hæðum.
Skerðingar Landsvirkjunar nema um 3% af orkuframleiðslunni og ég veit að þeir ná líka til þessara stórnotenda og auðvitað er það ekkert grín. Það er ekkert grín fyrir bræðslurnar núna þegar staðan á loðnunni er eins og hún er. Það er ekkert grín fyrir álverin þegar álverið er í hæstu hæðum. En þetta er samt og hlýtur að vera í augum stjórnvalda aukaatriði í stóru myndinni sem kemur að því að tryggja landsbúum öllum græna orku, örugga orku.
Mig langar því að ræða ábyrgð stjórnvalda hér, hvernig þetta er gert. Hver væri kostnaðurinn af því að tryggja að þau sveitarfélög sem um ræðir gætu keypt forgangsorku? Nú er verið að niðurgreiða orku til heimilanna en það er ekki niðurgreitt til sveitarfélaga. Hver væri kostnaðurinn við slíka ráðstöfun? Er það hægt? Og hver er kostnaðurinn við að gera það ekki, (Forseti hringir.) með tilfallandi lélegri lífsgæðum fyrir þessa íbúa (Forseti hringir.) og þann kostnað sem hlýst af því að vera keyra á jarðvarma (Forseti hringir.) þegar við getum unnið þetta öðruvísi?