152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

raforkumál.

[12:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka þeim þingmönnum, og ráðherra sérstaklega, sem hafa tekið þátt í þessari umræðu. Mig langar til að koma inn á nokkur atriði sem hafa komið fram í umræðunni. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir kom inn á að það væri ekki orkuskortur í landinu heldur væri umframeftirspurn eftir grænni orku og umframeftirspurnin eftir grænu orkunni blasir sannarlega við. En mig langar, og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á sama atriði, að vísa í viðtal við forstjóra Landsvirkjunar frá 15. janúar síðastliðnum þar sem forstjórinn var spurður í fréttum Ríkisútvarpsins: Höfum við næga orku í orkuskiptin? Með leyfi forseta var svar forstjórans: Nei, við höfum hana ekki. Síðan fylgdu útskýringar með því.

Við verðum að horfa á málin eins og þau liggja fyrir. Það er auðvitað sjónarmið að það sé ekki orkuskortur. Með þeirri nálgun erum við að segja að þá ætlum við bara að sætta okkur við að nota jarðefnaeldsneyti eða hvað annað það kann að vera sem þarf til að koma okkur í mark hvað orkuþörfina varðar. Ég skil það ekki sem svo að það séu skilaboð stjórnvalda og þess vegna finnst mér skipta svo miklu máli að menn viti hvert þeir þurfa að komast og hvernig þeir ætla að komast þangað og vonandi kemur það fram í umræðu um rammaáætlun á eftir.

Kannski eitt atriði til viðbótar áður en tími minn klárast. Það hefur nokkuð verið rætt um dreifikerfið. Þetta er búin að vera eilíf þrautaganga og þeir sem settu regluverkið um umhverfismat á sínum tíma hafa alveg örugglega ekki séð það fyrir sér að regluverkið yrði svo tyrfið í framkvæmd að af sjö ára heildarundirbúningstíma línulagnar færu fimm ár í skipulag en tvö í framkvæmdatíma, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kom inn á áðan. Þetta verðum við að laga. Á meðan við lögum þetta ekki er hætt við að við komumst ekki áfram í þessu verkefni.