raforkumál.
Frú forseti. Við ræðum hér gríðarlega mikilvægt mál og ég lít kannski á þetta svolítið sem upphitun fyrir umræðuna hér á eftir sem snýr að ramma 3 og mikilli umræðu sem við förum væntanlega í í dag. Það er hægt að fara mjög víða í þessum málaflokki og tíminn er stuttur núna. Við höfum aðeins rætt um flutningskerfi raforku í dag, hv. þingmenn hafa aðeins komið inn á það mál.
Þá vil ég benda þingmönnum á að fyrir örfáum dögum síðan, kannski einni viku eða tveimur, benti Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, á að ef það væri almennilegt flutningskerfi raforku í landinu sem tengdi norðursvæðið og suðursvæðið saman þá værum við ekki í þessari umræðu núna. (Gripið fram í: Nákvæmlega. ) Þetta er kannski stærsta vandamálið, eins og í Eyjafirðinum, þaðan sem ég kem, þar sem er búið að vera ólíðandi ástand í rúmlega 20 ár sem hefur hamlað öllu atvinnulífi, öllum mögulegum framkvæmdum á svæðinu og búið halda öllu í heljargreipum í 20 ár. Oft er talað í þessu samhengi um að það væri ekki hægt að tengja pylsuvagn í göngugötunni í þessu ástandi.
Þegar stofnað var til byggðalínunnar fyrir tæpum 50 árum þá gat hún flutt um 20–25% af aflgetu virkjana í landinu. Þetta hlutfall er í dag 3–4%. Þetta er stóra einstaka vandamálið í íslenska raforkukerfinu fyrir alla nýtingu. Það kemur líka í veg fyrir að hægt sé að virkja ákveðna hagstæða kosti vegna þess hversu illa hefur verið staðið að málum sem snúa að flutningskerfi raforku, hvers konar hömlur hafa verið settar á það og unnið gegn því að hægt væri að styrkja það. Nú breytist staðan; eftir að Kröflulína 3 var tekin í notkun síðastliðið sumar og spennusett í ágúst, þ.e. frá Fljótsdalsstöð og yfir í Kröflu, og ú þegar Hólasandslína 3 verður tengd við Akureyri í sumar, þá gjörbreytast aðstæður norðan megin og svo er það Blöndulína 3. Þetta kann að leysast með Blöndulínu 3 kannski á næstu fimm árum. (Forseti hringir.) Síðan eigum við eftir allt Vesturlandið og tenginguna suður úr frá Blönduvirkjun og Hrútatungu (Forseti hringir.) og því svæði niðri Hvalfjörðinn. Það gæti verið 10–15 ára rammi (Forseti hringir.) og það skulum ræða áfram í dag.