raforkumál.
Frú forseti. Það er eðlilegt ástand að það sé skortur á raforku. Raforka er auðlind og hún er ekki óþrjótandi. Hvers vegna leyfi ég mér að fullyrða þetta? Jú, vegna þess að eftirspurnin eftir raforku getur verið óþrjótandi. Þess vegna verðum við að forgangsraða við útbýtingu orkunnar okkar og þar verða stjórnvöld fyrst og fremst að huga að almenningi í landinu. Á dögunum bárust okkur þær fregnir að vegna þess að Orkubú Vestfjarða kaupir svokallaða skerðanlega orku fyrir almenning, sem er bara ekkert til í dag, þurfi orkubúið nú fram á vor að brenna olíu sem samsvarar tíu ára meðalbrennslu með umtalsverðum kostnaðarauka fyrir almenning á þessum köldu svæðum. Þegar þetta var ljóst þá spurði ég mig hvernig stæði á því að orkubúið væri að velja að kaupa skerðanlega orku fyrir almenning en ekki forgangsorku. Svarið er einfalt. Jú, vegna þess að viðskiptamódelið býður ekkert upp á annað. Skerðanlega orkan er ódýrari og þess vegna grípa rekstraraðilar til þess að veðja á að það þurfi ekki að skerða orkuna. Og á hverjum bitnar þetta? Jú, auðvitað almenningi. Stjórnvöld og við sem löggjafinn verðum að bregðast við þessu og það strax. Við þurfum hvort tveggja að setja skýr lagaboð um að ekki megi semja um skerðanlega orku til húshitunar og rafveitu til almennings í landinu svo tryggt sé að heimilin lendi ekki í himinháum orkukostnaði án fyrirvara. Og í öðru lagi verða stjórnvöld að búa svo um hnútana að fyrirtækin sem veita orkunni inn á þessi köldu svæði fái stuðning til að almenningur verði ekki ítrekað fyrir verulegu höggi vegna orkuskorts. Ég hvet hæstv. ráðherra til að grípa til aðgerða í þessum málum.