raforkumál.
Virðulegi forseti. Það er rætt um orkuskort í landinu og innviðaráðherra segir að grípa þurfi til aðgerða auk þess sem forstjóri Landsnets og forstjóri Landsvirkjunar hafa varað við orkuskorti og vilja að landsmenn spari rafmagn. Ég skil eiginlega ekki að þessi staða sé raunin á Íslandi þar sem aldrei á að vera skortur á raforku. Eitthvað eða einhverjir hafa brugðist með ótrúlegum hætti. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt að gera spár um orkunotkun og hver orkuöflun þarf að vera og maður veltir fyrir sér af hverju sé ekki búið að bregðast við þessum fyrirséða vanda og hver sé ábyrgð þeirra sem stýra þessum málum á því að það hafi ekki verið gert. Þrátt fyrir að vita að framleiðslukerfið væri að nálgast efri þolmörk gerði Landsvirkjun samninga við gagnaver um sölu á raforku til þeirra. Gagnaver eru gríðarlega orkufrek. Hvernig getur staðið á því að slíkir samningar séu gerðir þegar raforkuskortur er fyrirsjáanlegur? Landsvirkjun var byggð upp af þjóðinni með fyrirheitum um lágt rafmagnsverð um alla framtíð. Hvernig samrýmist sala Landsvirkjun á heimildum til raforkusölu þessu markmiði? Og hvenær var þessu markmið fyrirtækisins breytt? Kannski er minni vankunnáttu um að kenna en ég man ekki eftir umræðu um þá ákvörðun að Landsvirkjun væri einungis umboðsaðili í raforkusölu sem hefur það m.a. í för með sér að heilt bæjarfélag eins og t.d. Vestmannaeyjar þarf að kaupa raforku og dreifingu í gegnum millilið sem hækkar þá um leið verðið til mikilla muna. Hvenær urðu fyrirtæki eins og t.d. N1 helstu söluaðilar raforku á Íslandi? Er einhver lagasetning í undirbúningi í ráðuneytinu til að tryggja að almenningshagsmunir ráði alltaf för í viðskiptum með raforku, að heimilum sé alltaf tryggð næg raforka og þau njóti forgangs þegar skortur kemur upp og að heimilin séu ekki leiksoppar markaðsafla sem geta hækkað verð að vild?