raforkumál.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda kærlega fyrir þessa umræðu um raforkumál sem er afskaplega brýnt mál og ég fagna því í hvert skipti sem við tökum umræðu um það á Alþingi Íslendinga. Sömuleiðis vil ég þakka ráðherra fyrir yfirferð hans áðan sem var góð og gagnleg. Það er alveg ljóst að við erum á leiðinni í orkuskipti og við þurfum að fara í orkuskipti og við þurfum að huga að þeim loftslagsmarkmiðum sem núverandi ríkisstjórn hefur sett og við öll, held ég, sem hér erum inni, alla vega langflest, erum að stóru leyti sammála um að verði að bregðast við.
Það sem mig langar aðallega að gera að umræðuefni mínu hér er að fagna þeirri vinnu sem sett hefur verið af stað í ráðuneytinu varðandi þessa grænbók sem fyrirhuguð er að komi út á næstunni, einfaldlega vegna þess að þær upplýsingar sem við fáum eru mjög misvísandi um það hvort hér í landinu ríki orkuskortur eða hér sé til næg orka. Landsvirkjun hefur gefið út þrjár sviðsmyndir er viðkoma þessu máli; óbreytt ástand, græna framtíðin og stórnotendurnir. Það er alveg ljóst að miðað við þá spá vantar orku, ef við erum að horfa á grænu leiðina og klárlega töluvert mikla ef horft er til stórnotenda.
Mig langaði líka á þessum stutta tíma að segja, af því að hér hefur verið talað um hvað sé hægt að gera, að okkar ágæta raforkukerfi er þungt í vöfum. Þess vegna hvet ég þá sem fara með skipulagsvald að skoða hvort hægt sé að einfalda og flýta því kerfi og sömuleiðis að skoða möguleikana varðandi fjarvarmaveitur sem ég held að væri mjög góð og gagnleg (Forseti hringir.) leið til þess að bregðast hratt við því ástandi sem uppi er nú á mjög mörgum stöðum. (Forseti hringir.) Ég hvet ráðherra til góðra verka í þessu.