152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

raforkumál.

[12:15]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir að hafa frumkvæði að þessari umræðu um raforkumál og hæstv. ráðherra fyrir ræðu sína. Að mínu viti þurfum við að vita í hvað við þurfum orku og þá hversu mikla. Þá þurfum við að vera sammála um það í hvað við ætlum að beina orkunni. Minn skilningur er sá að í raun og sann sé ekki vilji til þess að grípa til stórvirkra aðgerða liðinnar tíðar og er það vel. Eftirspurnina vantar hins vegar ekki eins og hefur komið fram hér í dag. Við erum rík af endurnýjanlegum orkugjöfum en þeir eru ekki óendanlegir. Það er enginn sómi af því að sóa því sem gnægð er af. Við verðum að nýta betur þá orku sem þegar er framleidd í kerfinu, spara og minnka tap. Við eigum þess kost að ná meira afli út úr núverandi virkjunum og hefur hæstv. ráðherra boðað breytingar á löggjöfinni svo bæta megi nýtingu virkjana og það er vel. Það er ein leið í að ná árangri í þessum efnum. Að endingu, þegar ráðast þarf í frekari orkuöflun, er mikilvægt að gera það með hagsmuni náttúrunnar að leiðarljósi. Við verðum að ganga um auðlindina af virðingu, vega og meta aðra mikilvæga þætti þótt vissulega séu orkuskiptin mikilvæg og óumflýjanleg. Því erum við öll, held ég, sammála hér. Með öðrum hagsmunum á ég við eigið gildi náttúrunnar, auðinn sem felst í ósnortinni náttúru, til að mynda í formi gjaldeyristekna, enda er síðustu 43% af ósnortnum víðernum Evrópu að finna hérlendis. Þá er ótalið mikilvægi sáttar um þessi mál. Óeining samfélaga, sem sagan segir okkur að fylgi stórkarlalegum virkjunarframkvæmdum, stuðlar ekki að velsæld samfélagsins og við getum ekki horft fram hjá því.