raforkumál.
Forseti. Mig langar til að fjalla aðeins um sviðsmyndir Orkustofnunar um orkuþróun á næstu árum. Þar eru þrjár sviðsmyndir. Það er sviðsmynd um óbreytt ástand eða áframhaldandi þróun eins og verið hefur, það er sviðsmynd um græna framtíð og sviðsmynd um stóriðjustefnu. Þá langar mig til að spyrja: Hver er í rauninni stefna stjórnvalda? Er það að viðhalda núverandi stærð stóriðju t.d. og virkja þá meira til að ná upp framförum annars staðar? Er það að minnka stóriðjuhlutann í orkunotkun eins og hún er núna? Við erum í 80–85%, eitthvað svoleiðis, með stóriðjustefnunni, álverin 80%. Er það ekki allt of mikið? Ef við minnkum hlutdeildina þar þá er til fullt af orku fyrir alls konar framfarir, fyrir einmitt græna framtíð. Þá þarf ekki fleiri virkjanir. Þannig að svarið við því hver stefna stjórnvalda er er rosalega mikilvægt svar fyrir framtíðina og hvernig við afgreiðum næsta mál hérna á dagskrá um rammaáætlun. Eins og er, með því að vera 80% háð álinu til þess að selja orkuna okkar, þá erum við einfaldlega bara leiguliðar stóriðjunnar. Það er ekkert flóknara en það. Það þarf stefnu stjórnvalda til að breyta því.
Það má minnast á annað sem notar mikla orku, það er rafmyntaiðnaðurinn þar sem verið er að grafa endalaust eftir rafmyntum, þar á meðal Bitcoin, gjörsamlega tilgangslaust. Það er gjörsamlega tilgangslaust sérstaklega af því að það er munur þarna á. Bitcoin er eitt og það eru til annars konar rafmyntir sem nota allt að 7.000 sinnum minni orku fyrir hverja færslu. Þarna þarf líka að eiga sér stað ákveðin stefnumörkun. Ætlum við í alvörunni nota orkuna okkar til að halda uppi Bitcoin sem eyðir orku á við Jórdaníu, heilt smáríki í hraðri uppbyggingu? Það er galið. Ef við ætlum að styðja við rafmyntir á annan hátt þá ættum við að beina því að rafmyntum sem nota orku á hagkvæman hátt.