raforkumál.
Virðulegi forseti. Mig langar bara til að fara beint inn í hina pólitísku ábyrgð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í samfellt níu ár stjórnað orkumálunum og þar liggur vitaskuld hin pólitíska ábyrgð, á því að heimili, og fyrirtæki á landsbyggðinni hafa í langan tíma ekki getað gengið að nægilega áreiðanlegri orku, heilu landsvæðin hafa ekki með tryggðan aðgang að raforku í samræmi við þörf. Það er áhugavert að þrátt fyrir að heimilin í landinu noti, að mér skilst, um 5% hluta raforkunnar sé staðan samt svona á ákveðnum landsvæðum. En stóra myndin er að þetta er annars vegar skammtímaáskorun sem við erum að horfa á og hins vegar langtímaáskorun. Skammtímakrísan orsakast af þremur þáttum sem allir birtast á sama tíma; það kom ekki nægilegt vatn í lónin í tvö ár og þess vegna er ekki nægt framboð. Allir stórnotendur á landinu, eins og álverin, eru í fullri keyrslu og eftirspurn er þess vegna óvenjumikil þegar síðan birtist óvenjulega mikið af loðnu. Þannig að þessi skammtímakrísa tengist í mínum huga ekki því hvort virkja þurfi meira eða ekki. Það væri fáránlega dýrt að ætla að fara að byggja upp kerfi sem ætti að höndla ástand eða árferði sem ekki endurspeglar venjubundna þörf. En þetta krísuástand dregur í mínum huga algerlega skýrt fram hversu alvarlegt það er hvernig flutningskerfið er, hversu veikt það er. Við sjáum áhrifin á tilteknum landsvæðum, t.d. eins og á Vestfjörðum, og mér finnst það skandall. Það er skandall að kerfið sé veikt og það er skandall að ekki sé forgangsraðað í þágu heimilanna. Það er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að koma ekki orkunni þangað sem hún þarf að komast. Langtímaáskorunin í mínum huga tengist orkuskiptunum sjálfum, að við séum með nægilega orku fyrir hana. Við vitum að markmiðið er að á næstu 18 árum ætlum við að verða fyrst þjóða til að losa okkur að fullu við jarðefnaeldsneytið. Þessu er hægt að ná en til þess þarf skýra hugmyndafræði. Það þarf að skýra ábyrgð aðila. Það þarf að útfæra leikreglur markaðarins og tryggja að kerfið virki óháð árferði og sveiflu. En planið (Forseti hringir.) af hálfu ríkisstjórnarinnar vantar því miður alveg. Það eru engar leiðir (Forseti hringir.) að markmiðinu sem liggja fyrir og þessi tímasóun ríkisstjórnarinnar er alvarleg ógn við markmiðin um orkuskipti.