152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[13:09]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á hvert hv. þingmaður er að fara núna. Gagnrýnin hefur verið sú, og ég hlusta á hana, að þingið fengi ekki nægan tíma til að ræða þessi mál. Það er ekki svo gott að einn maður, sama hver er, geti náð þjóðarsátt um einhverja hluti. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, virðulegi forseti, að hv. Alþingi sé ekki rétti vettvangurinn til að ræða þetta og reyna að ná sátt þá er það mikið skipbrot fyrir lýðræði í landinu. Það er bara mikið skipbrot fyrir lýðræðið í landinu. Ég hef fulla trú á að hv. þingmaður og aðrir hv. þingmenn séu vel til þess færir. Að sjálfsögðu mun ég taka þátt í þeirri umræðu og við eigum örugglega eftir að taka mörg samtöl, bæði á nefndafundum og annars staðar, út af þessum málum. Ég hef fulla trú á því að Alþingi Íslendinga sé rétti vettvangurinn til að ræða þessi mál, kalla eftir ólíkum sjónarmiðum, reyna að ná sátt og í það minnsta að vera sammála um hvað við erum ósammála um sem væri nú stórt mál. En ég hef sömuleiðis sett af stað vinnu, eins og ég nefndi, (Forseti hringir.) til að auðvelda hv. þingmönnum að fá þær upplýsingar sem þarf.