152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[13:11]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og ánægjulegt að sjá hann svindla á tímalínunni í rétta átt þegar kemur að framlagningu mála sem kynnt eru til sögunnar í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það er svo óvænt að það kemur á þingmenn hér.

Ég ætlaði að fá að vera föst í forminu í fyrra andsvari og ég verð eiginlega að biðja hæstv. ráðherra að tala við mig eins og ég sé fimm ára. Ég er að reyna að skilja þetta með samspil fullyrðingar eða markmiða ríkisstjórnar í stjórnarsáttmála um að fjölga úr nýtingar- og verndarflokkum í biðflokka. Síðan kemur ramminn óbreyttur og svo segir ráðherra, staðfestir það sem vitað er, að rammi 4 sé nær tilbúinn. Verður rammi 4 þar með lagður fram líka af hæstv. ráðherra, jafnvel á næsta vetri? Ég bara átta mig ekki á þessari línu. Ég tek heils hugar undir það að takast á við þessa hluti hér á þingi og ræða þá og komast að einhverri niðurstöðu. En ef eitthvert plagg liggur síðan frammi hjá ráðherra sem gengur þvert á það og heitir rammi 4 — ég hreinlega stend hér og ég viðurkenni að ég skil þetta ekki og ráðherra hefur mínútu til að útskýra þetta fyrir mér.