áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir fyrirspurnina. Það verður að vinna þetta eftir lagarammanum. Þegar kemur að 4. og 5. ramma verður að fara í gegnum ákveðið ferli sem er bundið í lögum og reglum. Ég vinn eðlilega eftir því.
Hv. þingmaður nefnir mjög mikilvægan þátt sem er dreifikerfið. En það er ekki bara það. Við þurfum að nýta orkuna betur. Við getum gert betur þegar kemur að hringrásarkerfinu í orkunni svo að dæmi sé tekið. Það er bara orka sem við gætum nýtt hjá stórnotendum sem er mikilvægt að nýta. Þess vegna kom ég líka fram með frumvarp varðandi stækkunina á orkuverunum, að það væri einfaldaður ferill. Eru ekki allir sammála því að við viljum fá eins mikið út úr þeim virkjunum sem nú þegar eru til staðar? Ég myndi ætla það. Sömuleiðis varðandi varmadælurnar.
Það eru bara mjög margir þættir sem þarf að líta til. Fyrir mér er þetta svona: Þegar maður átta sig á stærð verkefnisins þá held ég að það sé mjög mikilvægt að sérstaklega þingið komi að því, átti sig á því, þannig að við séum sem flest að gera þær (Forseti hringir.) ráðstafanir og ýta undir ráðstafanir til að ná þeim markmiðum sem við viljum ná.