152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[13:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra framsöguna og gott að þetta mál sé komið til meðferðar í þinginu. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í greinargerð tillögunnar en í lið 2.2. Störf faghópa í 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar segir, með leyfi forseta:

„Hinn 12. október 2015 skipaði verkefnisstjórn faghóp 4 til að fjalla um virkjunarkosti og landsvæði með tilliti til hagrænna þátta, einkum út frá áhrifum einstakra virkjunarkosta eða hópa virkjunarkosta á þjóðarhag.“

Síðan segir áfram, með leyfi forseta:

„Faghópur 4 komst að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að meta þjóðhagslega hagkvæmni þeirra virkjanakosta sem til umfjöllunar eru í 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar.“

Getur hæstv. ráðherra eitthvað útskýrt fyrir þingheimi hvað þetta þýðir raunverulega? Faghópur 4 var skipaður og hefur væntanlega tekið við þeirri skipun til þess að vinna það verkefni sem hópurinn kemst síðan að niðurstöðu um að ekki séu forsendur til að skila af sér.