áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ætla að reyna að svara miðað við bestu upplýsingar. Í stuttu máli er það þannig að niðurstaða faghópa 1 og 2 voru í formi einkunna um annars vegar verðmæti einstakra landsvæða og hins vegar áhrif einstakra virkjunarkosta á þau landsvæði. Verkefnisstjórn tekur þær einkunnir og gerir tillögu að flokkun virkjunarkosta á grundvelli þeirra einkunna. Faghópar 3 og 4 skiluðu ekki niðurstöðu í formi einkunna heldur skýrslna og það er hluti af lokaskýrslu verkefnisstjórnar. Því gat verkefnisstjórnin ekki tekið þær niðurstöður inn í lokatillögu sína eins og hún gerði með niðurstöðu faghópa 1 og 2. Aðferðafræðin miðað við þetta gerir ekki ráð fyrir því. Þetta er bara sagan og þetta er auðvitað eitthvað sem allir hv. þingmenn hafa aðgang að og ég efast ekkert um að hv. þingmenn munu eðlilega geta farið dýpra í þetta í sinni vinnu.