152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[13:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held reyndar að það sé nánast hægt að segja þetta um öll mál. Það er hægt að fresta þeim og bíða eftir frekari upplýsingum og annað. Ég held að á þessum sex árum séu það ekki grundvallarbreytingar sem snúa að rammaáætlun 3 og það sem við erum að fást við hér í dag. Það sem hefur breyst hins vegar er að vindorka í heiminum er talin ein helsta lausnin varðandi græna framtíð og loftslagsmál. Það vill bara svo til að samkvæmt þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á Íslandi, í Búrfellslundi og víðar, að nýtingarhlutfall í vindorku á Íslandi er kannski 45–50%, á heimsvísu er það 28%. Þarna er allt í einu orkukostur líka sem er mjög hagstæður og samkeppnishæfur á Íslandi og framleitt megavatt í vindorku hefur lækkað stórkostlega á undanförnum tíu árum með bættri tækni og þróun.

Þess vegna finnst mér lykilatriði í þessu máli, og þegar við vorum að vinna í orkustefnunni voru það þrír punktar sem ég lagði helst áherslu á. Það var uppbygging í flutningskerfi raforku, sem er lykilatriði, að hægt sé að spila kerfin saman, lónin í landinu, eins og við þekkjum varðandi það hvernig staðan er núna á Þjórsársvæðinu og Tungnaá, en þar hefur verið vatnslítil á í tvö ár í röð og þá skapast ákveðið ástand. Þá hefur forstjóri Landsvirkjunar bent á að ef það væri alvöruflutningskerfi raforku á milli norðursvæðisins, raforkusvæðisins, og suður, þá værum við ekki í þeirri stöðu sem við erum að ræða hér.

Svo vill bara til, og þess vegna hef ég kallað eftir því í umræðunni í þessum sal undanfarin ár, að við þurfum að ræða þessi mál miklu dýpra og ná umræðu um vindorkuna vegna þess að hún hefur ekki þroskast mjög með þjóðinni á undanförnum árum eins og hún ætti að gera, vegna þess að mig grunar að við Íslendingar séum í einstakri stöðu að geta spilað vatnsafl og vindorku saman til að nýta (Forseti hringir.) heildarraforkukerfið svo miklu betur en við gerum í dag og þá með öflugu flutningskerfi raforku.