áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir andsvarið. Nei, það er alveg rétt að vafningar hafa ekki verið til heilla og pólitískir vafningar ekki heldur eins og dæmin sanna. Það er mjög mikilvægt að hafa það í huga, þegar við ræðum um Landsvirkjun og Landsnet, að við erum að tala um fyrirtæki sem fólkið í landinu á og það þarf að setja eigendastefnu sem er leiðarljós og er í samræmi við almannaheill og þá stefnu sem við hér á hinu háa Alþingi setjum; við setjum þar með upp vegvísi fyrir ríkisstjórn og stjórnvöld í landinu. Ef það er eitthvað sem ég tel hafa misfarist í aðferðafræðinni við rammann, eins og hann hefur tíðkast, er að hann kallaði fram allar mögulegar hugmyndir um virkjunarkosti í landinu og þær hafa margar hverjar orðið ansi stórkarlalegar. Það hefur kannski líka að einhverju leyti tafið framgang málsins.