152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[13:59]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er verið að velta upp ýmsum flötum hér en ég vildi kannski koma því að að þetta er ekki í vinnslu í ráðuneytinu, það eru alltaf verkefnisstjórnir í gangi. Verkefnisstjórnir munu fara í 4. og 5. áfanga. Ég vil benda hv. þingmönnum á að það er vefsíða sem heitir ramma.is sem m.a. rekur virkjunarkosti og það sem er í gangi þarna. Auðvitað geta hv. þingmenn líka kallað eftir þessum upplýsingum. Þetta er ekki gert í neinu pukri. Það eru verkefnisstjórnirnar, af því að það kom fram annars staðar í umræðunni að ráðherra skipaði faghópa, sem skipa faghópa. Þetta er ferli sem við erum búin að setja af stað. Þegar kemur síðan að ýmsum öðrum þáttum sem hv. þingmaður nefndi þá kom flest af því ef ekki allt fram í grænbókinni til að hjálpa hv. þingmönnum og þjóðinni að meta þessa þætti. En það var farið í þetta ferli, sem er að vísu mun eldra en hv. þingmaður vísaði til, 1. áfanginn 1999–2000, og forsagan enn lengri, til þess einmitt að líta á þetta með bestu upplýsingar sem mögulegt er í höndunum.