152. löggjafarþing — 37. fundur, 10. feb. 2022.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
332. mál
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir upplýsingarnar og auðvitað er það rétt að þetta er unnið í verkefnisstjórnum og um að gera að glöggva sig á því. Mig langar til að ítreka spurningu mína um vindorkukostina og hvernig þeir séu hugsaðir. Það væri gott að vita og fá það fram hér í ræðustól Alþingis hvar það stendur með tilliti til 4. og 5. áfanga.