152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:01]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og staðan er núna eru vindorkukostirnir inni í rammanum. Þeir eru samt ekki margir. Ef ég man rétt þá er sá eini sem er í nýtingarflokki Blöndulundur en síðan eru aðrir í biðflokki. Síðan er tiltekið í stjórnarsáttmála að fjalla eigi sérstaklega um vindorkuna. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson vísaði hér til þess, sem er rétt, og þetta er það sem hefur breyst mjög mikið. Ég er að reyna að passa mig, auðvitað hef ég mínar skoðanir, en þegar maður sér vindorkulundinn í Blöndu sem er bara 100 MW, sem mér finnst vera lítið, þá held ég að flestir séu á því að ef þú á annað borð setur upp vindorkugarð eigi menn að fá þá nýtingu eins góða og mögulegt er. En eins og staðan er núna er þetta inni í rammanum og er eitt af því sem hv. þingmenn geta fjallað um. Síðan er þetta líka tilgreint, að mér sýnist mjög vel, á áðurnefndri heimasíðu. En auðvitað hafa menn aðgang að verkefnisstjórninni sem er að störfum núna.