áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er alveg ljóst að hv. umhverfis- og samgöngunefnd þarf að kalla verkefnisstjórnir til sín og fá ítarlegar upplýsingar um það hvað er í undirbúningi í 4. og 5. áfanga og leggja mat á það hvernig það spilar saman við þennan sex ára gamla 3. áfanga sem við erum hér að ræða. Ég hygg að það sé ráð að taka á dýptina umræðuna um nýtingu vindorku vegna þess að við höfum ekki efni á því að láta eins og við þurfum ekki að nýta hana. Ég ætla að leyfa mér að halda því hér fram og taka undir með hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni sem ræddi um samspil nýtingar vatnsorku og vinds.