152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:06]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst verið er að endurvinna sex ára gamla tillögu um rammaáætlun hlýtur að vera hægt að endurvinna ársgamalt frumvarp um lagaramma utan um vindorkukostina. Það er skrýtið að það hafi ekki ratað ofar á aðgerðalista ríkisstjórnarinnar. Það endurspeglar kannski eitthvert ósætti innan stjórnarflokkanna, ég veit það ekki. Í flutningsræðu sinni talaði ráðherra um að við ættum síður að einblína á einstaka valkosti og horfa frekar á heildarmyndina, sem er kannski ágætt prinsipp ef heildarmyndin er vel unnin og á grundvelli nýrra gagna. En við erum að tala um sex ára gamla áætlun sem ekki var nógu mikið vandað til. Er þá ekki eðlilegt að við skoðum kosti eins og Hvalárvirkjun, Skrokköldu og Hágöngur eða Þjórsárvirkjanir í byggð með dálítið gagnrýnni augum en við myndum gera ef við værum með í höndunum ferska og vandaða rammaáætlun en ekki gamla og endurunna?