áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Það er alveg rétt, bæði hjá hæstv. ráðherra og hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, að heildarmyndin skiptir auðvitað máli. Það sem hefur ekki breyst er nákvæm útfærsla orkukostanna í þessari rammaáætlun eins og ég les hana. Þeir eru alltaf eins, þeir eru fasti, ef svo má segja, í þessari áætlun. Það sem hefur hins vegar verið á fleygiferð er álit almennings á því hvers virði náttúran er og hversu mikið við eigum að leggja á okkur til að tryggja alvörunáttúruvernd ómetanlegra víðerna og náttúruauðæfa, sem við eigum síðust í Evrópu eins og allir vita. Það er það sem hefur verið reynt að meta í faghópunum í gegnum árin og hefur að einhverju leyti tekist, eða ekki. Gleymum því heldur ekki að þetta er áætlun um vernd og nýtingu. Þetta er áætlun um hvernig megi nýta orkukosti en þetta er ekki síður áætlun um náttúruvernd.