152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, þetta er einmitt vandinn í hnotskurn. Það er þetta stefnuleysi sem einkennir öll okkar störf hérna. Við vitum oft ekki til hvers við erum að samþykkja lög. Mílumálið var klárað áðan. Það var tilefni til þess fyrir áramót en svo var ekki tilefni til þess og til hvers þá að klára það? Við erum alltaf í bútasaumi, einhvers konar reddingum fram og til baka af því að við gefum okkur aldrei neinn tíma til að taka samtalið um heildarmyndina, eins og hv. þingmaður orðaði það, og í samhengi við þau atriði sem skipta máli í þeirri heildarmynd. Tökum kvótakerfið sem dæmi. Það er alltaf smættað niður í að það hafi komið svo vel út af því að við erum ekki lengur með gjaldþrot sem var svo mikið vandamál. En við erum með rosaleg vandamál annars staðar á sama tíma þannig að kerfið er gallað þrátt fyrir það.