áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar í seinni umferð að velta því upp, vegna þess að það kemur fram í fyrirvara þingflokksins og hefur svo sem komið fram í máli þingmanna áður og ekki bara þingmanna Framsóknar en alla vega í þessum tiltekna fyrirvara, ósk um að fjölgað verði orkukostum. Við erum jú með vindinn og það var ekki eingöngu ramminn sem lá óbættur hjá garði í tíð síðustu ríkisstjórnar, á síðasta kjörtímabili, heldur voru þetta líka fjögur illa nýtt ár þegar kemur að vindinum. Það kom hins vegar fram frumvarp frá þáverandi umhverfisráðherra sem gekk býsna langt í því að slá þessa möguleika út af borðinu. Það fór ekki áfram og mig langar til að spyrja hv. þingmann: Finnst henni vindurinn ekki vera mikilvægt innlegg í umræðuna um rammann núna og mögulega fjölgun orkukosta? (Forseti hringir.) Og er þá ekki erfitt að vera ekki komin með skýra mynd (Forseti hringir.) af vindorku og stefnu okkar þegar við erum að ræða þessi mál?