152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:22]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum að vinna með tíu ára gamalt plagg sem verður kannski í eðli sínu alltaf þannig að við þurfum einhvern veginn að bæta það. Það hefur margt breyst, sérstaklega í sambandi við vindorkuna og það er ekkert óeðlilegt að sú umræða komi inn í þinglega meðferð um þetta mál. Við tókum umræðu um það í orkustefnuhópnum, ég sat í honum, og þar vorum við að horfa til þessara kosta. Við erum náttúrlega komin svolítið lengra á níu árum en að vera að binda okkur akkúrat á þessa bása, enda er þetta bara eitt skrefið á leið í 4. og 5. og sannarlega verðum við að taka þá umræðu líka.