áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við viljum ekki ganga gegn þessu markmiði sem ramminn boðar og erum sátt við þetta ferli. Eins og ég tók fram í upphafi ræðu minnar þá er þetta mjög mikilvægt verkfæri sem vinnur að jafnvægi á milli verndar og nýtingar og þar viljum við vera. En eins og ég segi, þetta er níu ára plagg, það eru níu ár síðan þessi áætlun var unnin og þetta er bara skref í 4. áfanga. Ég verð að hryggja hv. þingmann með því að ég get ekki lagt fram neinn óskalista eða hvaða breytingum nákvæmlega við viljum fylgja en við viljum að í þessu ljósi verði skoðað hvort fjölga megi virkjunarkostum í biðflokki eða breyta afmörkun virkjunarkosta í verndarflokki. Ég held að það sé ekkert óeðlilegt og hefur svo sem oft gerst að það er bókun eða fyrirvari við ríkisstjórnarmál sem gengur í gegnum þingflokkana, í þessu er það ekkert óeðlilegt, og það var alla vega enginn hávaði á þessum fundi.