áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að ræða hérna vindorkuna eins og venjulega í þessu máli. Hann er mikill áhugamaður um þróun hennar og hlýtur að geta tekið undir með mér að það sé afskaplega óheppilegt að við höfum ekki náð að klára að setja lagaramma utan um þá tegund raforku á síðasta ári eins og var lagt upp með vegna þess að þá væri miklu skýrar hvert ætti að stefna með þetta allt. Mig langar að spyrja þar sem hv. þingmaður hefur kannski betri innsýn í langtímaplön ríkisstjórnarinnar en sá sem hér stendur. Það er talað um lagaramma utan um vindorku í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en ekkert tengt þeim ramma birtist í þingmálaskrá þessa þings. Veit hv. þingmaður hvenær við gætum átt von á einhverri slíkri vinnu frá ráðherranum og hvort hún verði unnin á grunni þess sem strandaði hér síðasta vor eða hvort núverandi ráðherra ætli að taka einhverja aðra leið í þeim málum? Ég veit að þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem tjáðu sig í málinu voru efins t.d. um þingsályktunartillögu um skipulag landsins út frá nýtingu vindorku vegna þess að, ef ég man rétt, þá þótti þeim kannski of þröngt sniðið að því hvar mætti óheft reisa vindorkuver. Og þá spyr ég kannski á svipuðum nótum, vegna þess að þessar miklu tafir á afgreiðslu rammaáætlunar hafa haft í för með sér mikinn þrýsting á raforkuver (Forseti hringir.) sem eru rétt undir viðmiðunarmörkum, rétt undir 10 MW, hvort þingmaðurinn sjái fyrir sér (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin taki eitthvað af þeirri glufu á næstunni.