áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er talað um að 3. rammaáætlun verði kláruð og kostum í rammaáætluninni verði þá fjölgað í biðflokki. Það gæti mögulega orðið niðurstaðan. Þetta er bara almennur fyrirvari í umræðu, en ég vildi ekki leggja allt of mikið í þetta. Ég held að fullur vilji sé til að klára málið enda er það gríðarlega mikilvægt. Ég held ég hafi skrifað grein fyrir mörgum árum þar sem ég talaði bara um glataðan áratug í Eyjafirði og á Norðurlandi. Það hefur svo mikil áhrif á eitt samfélag í svo langan tíma þar sem öllu er haldið niðri. Það er ekkert hægt að þróa þetta áfram, byggja upp atvinnu eða annað. Það er svo mikilvægt að við klárum þetta og förum að koma þessu í ferli. Ég hef aðeins komið inn á að það séu komnar hugmyndir í rammaáætlun 4 og síðan 5. Varðandi síðan vindorkuna og að það komi frá ráðherra þingsályktunartillaga eða frumvarp um það, eins og ég sagði áðan þá er kallað eftir því og mér finnst gríðarlega mikilvægt að við fáum alvöruumræðu eins og við erum að gera núna. Við ræðum ótrúlega sjaldan þessi mál sem eru algjör undirstaða undir öllu hjá okkur. Ég veit ekki hvort það hefst núna. Ég sit í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og það er heldur að þéttast prógrammið hjá okkur. Við fáum þetta mál m.a. þar inn og það verður spennandi að takast á við það. En ég myndi svo sannarlega vilja fá málið fram sem allra fyrst persónulega, því ekki stýri ég för nákvæmlega fyrir ríkisstjórnina hvernig vinnulagið er þar eða verkáætlunin, og vonandi fáum við það með haustinu, inn í nýtt þing og tökum það alvarlega næsta vetur.