áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Mig langar til að nota tækifærið og spyrja hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson nánar út í orkustefnuna sem hann gerði hér að umtalsefni og skýrslu nefndar sem var þverpólitísk og skilaði til ráðherra haustið 2020, fyrir rúmu ári. Þar eru markmið vel hugsuð og nokkuð góð, sýnist mér, tólf markmið, en það skiptir máli að markmið vinni ekki hvert gegn öðru, þau þurfa að vinna saman, sérstaklega þegar um svona mikilvæga stefnu er að ræða. Hér stendur að það eigi að sjálfsögðu að stunda sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda. Það er eitt markmiðið. Vonandi eru allir sammála um það. En fyrsta markmiðið, og ég held að þetta sé ekki í mikilvægisröð, er eftirfarandi: Orkuþörf samfélags er ávallt uppfyllt. Það er mikilvægt að skilja hvað í þessu markmiði felst og því spyr ég hv. þingmann hvort það sé réttur skilningur minn á þessu markmiði, sem var sett niður í þessari nefnd og myndar þessa orkustefnu, að við séum hér að tala um að uppfylla orkuþörf almennings og fyrirtækja annarra en stóriðju. Ef allt hitt er undir þá vinna markmiðin ekki saman og ganga í rauninni ekki upp.