áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég kom inn á áðan varðandi gagnaverin sem dæmi eða rafeldsneyti í framtíðinni eða óskir um orku þá getum við ekki uppfyllt þetta allt. Hér erum við náttúrlega fyrst og fremst að tala um íslenskt samfélag, ef við ætlum að fara í orkuskiptin og klára þá verðum við að geta tryggt þetta. Mig minnir að íslensk heimili í dag, bara heimilin, séu með sirka 4% af orkunotkun á Íslandi. Sjálfsagt er það nánast hvergi minna en eins og ég sagði áðan þá er þetta hins vegar gríðarlega stór þáttur í okkar kjörum og lífi og í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það er orkukreppa í heiminum og við sjáum jarðgas hækka um 400–500% í Evrópu og víða um heiminn. Við erum ekki að fara að leysa allt þetta með grænni orku á Íslandi. Eftirspurnin er svo gríðarleg núna eftir þessu. Við þurfum náttúrlega að sníða okkar stefnu eftir því sem vinnst best fyrir þetta samfélag. Ég held að það sé hið stóra og mikilvæga verkefni. Persónulega finnst mér tíminn ekki endilega hafa nýst sérstaklega vel nú í að verða áratug í þessum efnum og við þekkjum það. Síðan hef ég síðustu ár verið að reyna að benda á það í þessum þingsal að við þurfum að ræða og fá meiri umræðu um alla aðra orkukosti sem koma síðan inn í þessa umræðu. Fyrst og fremst væri það vindorkan á þessum tímapunkti. Við eigum eftir að sjá hvað gerist varðandi sjóinn og slíkar virkjanir, sjávarfallavirkjanir, mögulega í framtíðinni. Eða hvað? Við þurfum bara að vita hverjir eru hagstæðustu kostirnir fyrir okkur. Íslenska raforkukerfið er vannýtt. Það kom klárlega í ljós í þessari vinnu, kannski 75% nýting á því. Með vindorkunni gætum við, eins og ég kom inn á áðan, aukið nýtinguna enn frekar og síðan með öflugu flutningskerfi raforku. Við erum að tala um að hvert prósent í betri nýtingu á kerfinu eru miklir fjármunir fyrir íslenskt samfélag.