áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég hjó eftir einu sem kom fram hjá hv. þingmanni og þingflokksformanni Vinstri grænna þar sem hann sagði að þau í þingflokknum leggi áherslu á mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar og að gætt verði jafnvægis á milli orkunýtingar og umhverfisverndarsjónarmiða, eitthvað á þeim nótunum. Orðin „við í þingflokki Vinstri grænna“ hafa gjarnan tiltekna merkingu þegar þau eru borin fram af formanni þingflokksins. Og mig langar að spyrja: Er það þá réttur skilningur að þingflokkurinn hafi gert fyrirvara við þessa tillögu eins og þingflokkur Framsóknar gerði af sinni hálfu?