áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er réttur skilningur hans að þingflokkur Vinstri grænna gerði fyrirvara við þessa tillögu og ég var að vísa til hans. Ég skal bara lesa hann upp fyrir þingmanninn, en ég veit að hv. þingmanni er mjög vel kunnugt um afstöðu Vinstri grænna í þessu samhengi öllu saman.
„Þingflokkur Vinstri grænna leggur áherslu á mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar af hendi Alþingis. Gætt verði jafnvægis milli verndar og nýtingar, rétt eins og tillaga verkefnisstjórnar byggir á. Sú faglega vinna sem endurspeglast í þeirri tillögu er mikilvægur grunnur að vinnu umhverfis- og samgöngunefndar. Í stjórnarsáttmála er fjallað um afgreiðslu málsins með þeim hætti að biðflokkurinn verði stækkaður, en við slíkt ferli leggur þingflokkurinn áherslu á að ofangreindu jafnvægi verði viðhaldið.“