áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Hér ræðum við stjórnartillögu — eða ætti maður að segja meinta stjórnartillögu, þegar tveir af þremur þingflokkum bókuðu fyrirvara við málið og báðir fyrirvararnir lúta að því að málið verði eins og sagði í stjórnarsáttmála að það ætti að verða? Að stækka biðflokkinn, stendur í stjórnarsáttmálanum. Það virðist hafa komið báðum samstarfsflokkunum á óvart þegar ráðherrann stækkaði biðflokkinn ekki áður en hann lagði tillöguna fram. Öðruvísi er erfitt að skilja hvers vegna báðir flokkarnir sáu ástæðu til að gera fyrirvara við akkúrat þennan þátt. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Kom það flatt upp á þingflokk Vinstri grænna að ráðherra skyldi víkja í þessu frá stjórnarsáttmálanum? Og kannski líka: Myndi þingflokkur Vinstri grænna ekki styðja tillöguna óbreytta? Stendur þingflokkurinn með tillögu ráðherrans óbreyttri eða ekki?