152. löggjafarþing — 37. fundur, 10. feb. 2022.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
332. mál
Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir fyrirspurnina. Ég get ekki svarað til um það hvort að — ja, sannast sagna get ég ekki svarað til um hvort það hafi komið einhverjum í þingflokknum á óvart að ráðherra skyldi leggja tillögurnar fram með þessum hætti. Ég minni þá á að ráðherra, sem var jú úr okkar röðum, lagði hana nákvæmlega eins fram á síðasta kjörtímabili. Við stóðum á bak við það í þingflokknum, eða þau sem voru í þingflokknum gerðu það, og ég geri það.