152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:37]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Því er fyrst til að svara að það verður að skoða þetta í því samhengi sem rammaáætlunarferlið er. Þetta ferli og fyrirkomulag var formað til þess að taka þessi mál úr skotgröfum stjórnmálanna og sú tilraun held ég að flestum hafi þótt skynsamleg. En það sem hefur síðan gerst bendir auðvitað til þess, eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan að ég hefði óttast undanfarin ár, að rammaáætlunarferlið og það verkfæri sem rammaáætlunin er sé nokkurn veginn dautt. Ég fylltist von um það núna með framsögu hæstv. ráðherra fyrir þessu máli fyrr í dag að kannski væri að koma líf í líkið, en síðan er það næsta sem við heyrum eru fyrirvarar samstarfsflokkanna um frumvarpið sem þeir eru nýbúnir að afgreiða út úr ríkisstjórn. Það er mjög sérstakt þegar kemur á daginn að fyrirvararnir frá þingflokki Framsóknarflokks og Vinstri grænna virðast ganga út á það að þingið aðlagi stjórnarmál í þessu tilviki að stefnu ríkisstjórnarinnar. Hv. þingmaður getur ekki annað en brosað með okkur stjórnarandstæðingunum að þessu. Annað er bara ekki hægt. En aftur á móti er ég fylgjandi því í prinsippinu að þingið hafi sem mesta skoðun á þeim málum sem koma frá ráðherrum því að oft hafa þau nú verið hanteruð þannig í færibandavinnu í ráðuneytunum að full ástæða er til og iðulega batna mál mikið í meðförum þingsins. Hvað þetta tiltekna mál varðar, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, þá vona ég að við samþykkjum málið óbreytt eins og það liggur fyrir og höldum síðan áfram með þessa rammaáætlunarvinnu á grundvelli fjórða rammans.